Hið íslenska sjávarsoð verðlaunað

Deila:

Hið íslenska sjávarsoð hlaut í vikunni Umhverfisverðlaun Háskólans í Reykjavík. Hið íslenska sjávarsoð er fyrirtæki sem framleiðir hágæða fiskisoð á umhverfisvænan hátt. Notaðar eru til þess aukaafurðir fisks sem veiddur er á sjálfbæran hátt og umframframleiðslu grænmetis. Nýta á vannýtt affallsvatn frá jarðvarmavirkjunum til suðu og er öllu affallsvatni dælt aftur í jörðina auk þess að seldar verða aukaafurðir sem myndast við framleiðsluna til dýrafóðursframleiðanda.

Við sama fyrirtæki voru veitt verðlaun fyrir nýsköpun og stofnun fyrirtækja –  þriggja vikna áfanga sem allir fyrsta árs nemar í Háskólanum í Reykjavík taka í lok fyrsta árs í skólanum. Þá er nemendunum skipt í hópa sem síðan eiga að koma fram með og útfæra nýsköpunarhugmynd, búa til viðskiptalíkan og frumgerð nýrrar vöru. Í ár var unnið eftir svokölluð Sprint kerfi sem hannað var hjá Google. Þetta var stærsta einstaka keyrsla á slíku kerfi sem vitað erum um.

Sigurvegarar þar voru:

Go ARGuide sem er snjallsímalausn fyrir ferðamenn sem felur í sér sýndar leiðsögumann í gegnum viðbótarveruleika (e. Augmented Reality). Með lausninni geta ferðamenn gengið um borgir og ferðamannastaði og fengið sérsniðna leiðsögn og upplýsingar á mjög snjallan hátt.

ELJA Electronics er fyrirtæki sem tvinnar saman persónuleg raftæki og góða hönnun. Fyrsta vara fyrirtækisins er nýstárlegt fjöltengi með útdraganlegum innstungum sem hentar sérstaklega vel fyrir nútíma heimili sem vilja samhæfa áhuga sinn á tækni og hönnun.

Klippit gerir fyrirtækjum kleift að bjóða viðskiptavinum sínum upp á notendavænt smáforrit í símann sem heldur utan um öll stimpil- og klippikort.  Með því ná þau fram aukinni notkun og útbreiðslu gegnum auglýsingar innan forritsins.

Á myndinni eru nemendurnir sem standa að Hinu íslenska sjávarsoði. Búi Vilhjálmur Guðmundsson,

Kristján Guðmundur Sigurðsson og  Hjalti Jóhannsson -allt nemendur í Haftengdri nýsköpun

 

 

 

 

 

 

Deila: