Á landleið með 2.200 tonn af kolmunna

Deila:

,,Veiðin hefur heldur dalað frá því um daginn. Kolmunninn er dreifður og það þarf að toga lengi til að fá þokkaleg hol. Við erum með um 2.200 tonna afla og samkvæmt áætlun verðum við á Vopnafirði snemma í fyrramálið.“

Þetta segir Albert Sveinsson, skipstjóri á Víkingi AK, í samtali á heimasíðu HB Granda, en skipið fór af kolmunnamiðunum í fyrrakvöld og var stefnan þá sett á Vopnafjörð. Albert segir að megnið af skipunum séu nú að veiðum í hinu svokallaða ræsi suðvestur af Færeyjum.

,,Það kemur á óvart hve gríðarmiklir straumar eru á þessum slóðum. Það stafar væntanlega af þeim miklu djúpköntum sem þarna eru. Stundum þurfti skipið ekki að vera á ferð til að trollið héldist opið og ef togað var þvert á strauminn var hætta á að það legðist saman. Við byrjuðum veiðarnar í brælu en svo fór veðrið skánandi og var ágætt lengst af. Mér sýnist hins vegar að það verði ekki gaman að vera þarna um helgina vegna krapprar lægðar sem er á leiðinni,“ segir Albert.

Að sögn Alberts fór veiðin aðallega fram á um 140 til 220 faðma dýpi. Kolmunninn grynnkaði heldur á sér á kvöldin og á nóttunni og var þá dreifðari en á daginn.

,,Eins og staðan er núna þá vorum við að toga í 20 tíma og algengur afli eftir þann tíma var 300 til 350 tonn. Kolmunninn er frekar dreifður en ef það fundust blettir þar sem kolmunninn stóð þéttar þá voru önnur skip fljót á svæðið,“ sagði Albert Sveinsson.

 

Deila: