Meðalhitastig í aflanum 2,8 gráður

Deila:

„Hæsti meðalhiti mældist hjá bátum sem lönduðu í Þorlákshöfn (5,6°C) og á Siglufirði (4,2°C). Þar sem hitastig mældist hátt var algeng athugasemd eftirlitsmanna: „Enginn ís sjáanlegur um borð“ eða „mjög lítið af sjáanlegum ís í kari“. Í reglugerð 528/2012 er hnykkt á því að kæla skuli afla eins fljótt og auðið er eftir að hann kemur um borð og skipsstjórnandi skal geta sýnt fram á að hafa tekið nægan ís til veiðiferðarinnar.“

Svo segir í frétt frá Matvælastofnun, en undanfarið hefur stofnunin sinnt eftirliti með hitastigsmælingum á lönduðum afla. Á tímabilinu frá maí til ágúst 2017 voru teknar hitastigsmælingar á lönduðum afla. Alls voru þetta 140 mælingar sem teknar voru víðs vegar um landið. Um 90% bátanna voru á strandveiðum og tæp 88% mælinga voru af strandveiðibátum.

Meðalhitastig afla var 2,8 °C, þar af voru 40% hitastigsmælinga lægri eða jafnt og 2 °C, sem er viðmið fyrir hitastig bráðnandi íss. Við samanburð á hitastigi í afla má sjá að frá júní og út júlí hækkar meðalhiti afla sem kældur er með ís sem gæti útskýrst á hækkuðum sjávarhita en meðalhiti afla sem kældur er með krapa lækkaði hins vegar á sama tímabili.

Skipting milli íss og krapa sem kælimiðils var nokkuð jöfn eða 40% af hitamælingum af afla kældur með ís og 46% með krapa. Meðalhiti þess afla sem kældur var með krapa var 2,1 °C og meðalhiti afla sem kældur var með ís var 3,6 °C:

Deila: