Strandveiðar við Atlantshaf krufnar til mergjar

Deila:

Coastal Fisheries, eða strandveiðar, er nafn á verkefni sem hófst hjá Matís og samstarfsaðilum árið 2014. Tilgangur verkefnisins var að vekja athygli á strandveiðum í Norður-Atlantshafi, frá Noregi í austri og alla leið til Kanada í vestri en einnig að efla samskipti, kanna samlegðaráhrif, athuga nýsköpunarmöguleika og stuðla að miðlun upplýsinga á milli aðila á þessum mikilvæga svæði bláa lífhagkerfisins.

Sem hluta af verkefnalokum var sett saman myndband (á ensku) um þessar strandveiðar. https://youtu.be/pwDIRSeYm7k

Einnig var gefin út skýrsla þar sem strandveiðar á norðurslóðum voru greindar.

Nánari upplýsingar veitir Jónas R. Viðarsson hjá Matís en áhugavert einnig er að heimsækja heimasíðu verkefnisins.

 

Deila: