Hoffell með 940 tonn af makríl

Deila:

Hoffell kom til heimahafnar á Fáskrúðsfirði um helgina með 940 tonn af makríl. Aflinn fékkst í Smugunni um 360 sjómílum frá Fáskrúðsfirði þannig að langt er sótt samkvæmt frétt á heimasíðu Loðnuvinnslunnar.

Smugan er alþjóðlegt hafsvæði norður af Færeyjum þar sem myndast smuga á milli landhelgi Íslands, Noregs og Færeyja. Hoffellið er tveimur vikum fyrr í Smugunni heldur en í fyrra og sagði Guðni Ársælsson stýrimaður á Hoffellinu ástæðuna vera þá staðreynd að lítið hafi veiðst af makríl í íslenskri lögsögu þannig að ákveðið hefði verið að freista gæfunnar í Smugunni. Sagði Guðni ennfremur að þeir hefðu verið smá stund að finna makrílinn en þegar hann var fundinn gengu veiðarnar vel.
Þegar þessum afla hefur verið landað hefur Hoffellið komið með 3.800 tonn af makríl að landi sem telst nokkuð gott miðað við fremur trega veiði við Ísland.

 

Deila: