Til fyrirmyndar í rekstri

Deila:

Síldarvinnslan er Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2018 samkvæmt mati Viðskiptablaðsins og Keldunnar. Listi yfir Fyrirmyndarfyrirtækin 2018 var birtur í Viðskiptablaðinu 27. september sl. en 3% íslenskra fyrirtækja komast á listann. Forsendurnar sem byggt er á við matið eru eftirtaldar:

 

  • Rekstrarárið 2017 er lagt til grundvallar en einnig er tekið tillit til reksturs á árinu 2016.
  • Afkoma þarf að hafa verið jákvæð.
  • Tekjur þurfa að hafa verið umfram 30 milljónir kr.
  • Eignir þurfa að hafa verið yfir 80 milljónir kr.
  • Eiginfjárhlutfall þarf að hafa verið umfram 20%.
  • Aðrir þættir eru metnir af Viðskiptablaðinu og Keldunni. Er þar t.d. tekið tillit til skila á ársreikningi og rekstrarforms.

 

Samkvæmt úttekt Viðskiptablaðsins og Keldunnar er Síldarvinnslan í 18. sæti í flokki stórra fyrirtækja þegar framangreindar forsendur eru metnar.  Þar kemur til dæmis fram að tekjur fyrirtækisins á árinu 2017 voru rúmlega 23 milljarðar og eignir rúmlega 51,5 milljarður. Eiginfjárhlutfallið var 64%.

 

Deila: