Slysum til sjós fer fækkandi

Deila:

Slysum til sjós hefur farið fækkandi undanfarin ár hjá HB Granda hf. en sveiflur hafa verið í tíðni slysa í landi. Þetta kom fram á árlegum öryggisfundi félagsins sem haldinn var nýverið en fundinn sóttu öryggisnefndir vinnustaða bæði til sjós og lands auk skipstjórnarmanna og yfirmanna félagsins. Á fundinum var farið yfir stöðu öryggismála hjá HB Granda og nýtt skipulag málaflokksins var kynnt.

„Öryggismál eru veigamikill þáttur í vinnustaðamenningu HB Granda og verða því alltaf í öndvegi hjá félaginu“, sagði Guðmundur Kristjánsson forstjóri félagsins í upphafi fundarins. „Heilsa, vellíðan og öryggi starfsmanna er sameiginlegt markmið allra sem koma að félaginu og því munum við einskis láta ófreistað að fækka slysum og tryggja öryggi.“

Nýtt skipulag öryggismála miðar að því að auka vægi þeirra innan félagsins og gera þau skilvirkari. Ábyrgð á öryggismálum er á herðum stjórnenda og þá eru starfandi öryggisnefndir á öllum sviðum fyrirtækisins og hafa þær skýr hlutverk. Þá annast mannauðssvið félagins umsjón og eftirlit með málaflokknum. Þá er undirstrikað að hver og einn starfsmaður ber ábyrgð á eigin öryggi og er það brýnt fyrir öllum að tilkynna um allt það sem betur má fara. Ítrekað er í nýju skipulagi að öryggi snýst um vinnustaðamenningu sem hægt er að bæta og þróa með samskiptum og verður árlegur Öryggisdagur HB Granda mikilvægur í þeim tilgangi að halda nauðsynlegu samtali um öryggi starfsfólks lifandi.

Á fundinum var farið yfir dæmi um algeng slys og greint frá öryggisverkefnum sem flest fela í sér að efla forvarnir og fræðslu. Þá var fjallað um fyrirkomulag skráninga slysa og hættulegra atvika en hjá félaginu er lögð áhersla á traustar upplýsingar til að tryggja nákvæmar greiningar sem eru nauðsynlegar öllum forvörnum.

Gestur fundarins var Björn Halldórsson, öryggisstjóri Þorbjarnarins, en félagið hefur náð eftirtektarverðum árangri í að fækka slysum til lands og sjós.

 

Deila: