Æfðu með Dönum í Reykjavík

Deila:

Áhafnir varðskipanna Þórs og Hvidbjørnen héldu sameiginlega æfingu í Reykjavík á dögunum. Æfð var reykköfun og umönnun slasaðra. Áhafnir beggja skipa eru vel þjálfaðar og nýttu tækifærið þegar danska varðskipið var við bryggju í Reykjavík.

Halldór Benóný Nellett, skipherra á Þór, segir að samstarf þjóðanna sé afar gott og Danir hafi reynst Landhelgisgæslunni vel í gegnum tíðina. Meðfylgjandi myndband sýnir frá þessari áhugaverðu æfingu.
https://youtu.be/qiPThps27y8

 

Deila: