Nýr löndunarkrani á Brjánslæk

Deila:

Hafna- og atvinnumálaráð Vesturbyggðar hefur ákveðið að nýr löndunarkrani verði settur niður á höfninni á Brjánslæk.

Málið var rætt á fundi ráðsins á mánudag.  Hafnarstjóri fór yfir áætlanir vegna staðsetningar löndunarkrana en á síðasta fundi ráðsins var óskað eftir nánari upplýsingum um staðsetningu hans og metið hvort hann ætti að vera staðsettur á Brjánslækjarhöfn.

Hafnarstjóri fór yfir ástand löndunarkrana á Patreksfjarðarhöfn og viðhald, áætlaðan kostnað við flutning, uppsetningu og tengingu á nýjum krana. Á grundvelli fyrirliggjandi upplýsinganna og með tilliti til kostnaðar við flutning, uppsetningu og tengingu var ákveðið að nýr löndunarkrani skyldi staðsettur á Brjánslækjarhöfn.

Uppsetning kranans fer fram um leið og veður leyfir á sama stað og núveranda eldri löndunarkrani er staðsettur.
Frétt og mynd af bb.is

 

Deila: