Á skólabekk í tvo daga
Í síðustu viku var gert hlé á veiðum Vestmannaeyjar VE og Bergeyjar VE og settust áhafnir skipanna á skólabekk í tvo daga. Þrír leiðbeinendur frá Slysavarnaskóla sjómanna voru komnir til Eyja og önnuðust kennsluna, en um var að ræða svonefnt fimm ára endurmenntunarnámskeið.
Sjómennirnir hlýddu á fyrirlestra og síðan fór verulegur hluti verklegu kennslunnar fram í þeirra eigin skipum sem er ótvíræður kostur. Kennsla af þessu tagi er afar mikilvæg og ekki veitir af að rifja upp kunnáttuna með reglulegu millibili.
„Útgerðarfélagið Bergur-Huginn er Slysavarnaskólanum afar þakklátt fyrir að bjóða upp á umrætt námskeið í Eyjum og tókst námskeiðið vel í alla staði,“ segir í færslu á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Nemendur á skólabekknum.