Leyfi fyrir niðurrifi Orliks fengið

Deila:

Um þriggja sentímetra gat var á skrokki togarans Orlik undir sjólínu sem orsakaði mikinn leka að skipinu sem varð vart við á sunnudagskvöld. Skipið hefur verið bundið við bryggju í Njarðvík í um fimm ár. Eftir að dælt hafði verið úr skipinu kom gatið í ljós og var því lokað. Orsakirnar liggja í tæringu á byrðingi skipsins.

Ástand skipsins er mjög alvarlegt því fleiri göt hafa fundist á skipinu og því orðið aðkallandi að koma skipinu á öruggan stað til að rífa það.

„Nú hefur fengist leyfi til að draga skipið upp í fjöru við Skipasmíðastöð Njarðvíkur þar sem því verður fargað. Sú aðgerð mun eina sér stað á allra næstu dögum, enda mikil áhætta að hafa skipið bundið við bryggju í Njarðvík í þessu ástandi,“ segir í frétt á vf.is
Á myndinni er Orlik við bryggjuna í Njarðvík eftir að hann var réttur af. Ljósmynd Hjörtur Gíslason.

 

Deila: