Góður tveggja vikna túr

Deila:

Frystitogarinn Blængur kom til Neskaupstaðar í gær úr góðum tveggja vikna túr. Afli skipsins var 300 tonn upp úr sjó að verðmæti 134 milljónir króna. Theodór Haraldsson skipstjóri segir að túrinn hafi í reynd gengið afar vel og verið tíðindalítill.

„Við byrjuðum í þokkalegu grálúðukroppi, síðan var farið í Berufjarðarál í ufsa og loks var ýsa veidd á Stokksnesgrunni. Veiðin var góð lengst af og fiskað eins og vinnslan hafði undan. Það var blíðuveður allan túrinn, en kolsvört þoka. Þokan var svo dimm að við sáum oft ekki aftur á gálga,“ segir Theódór í samtali á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Blængur heldur til veiða á ný eftir verslunarmannahelgi.

 

Deila: