MAST endurnýjar rekstrareyfi Arnarlax í Fossfirði

Deila:

Matvælastofnun hefur endurnýjað rekstrarleyfi Arnarlax ehf. til fiskeldis í Fossfirði í samræmi við lög um fiskeldi. Matvælastofnun auglýsti tillögu að endurnýjuðu rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 19. september 2022 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 17. október 2022.

Arnarlax sótti um endurnýjun á rekstrarleyfi vegna sjókvíaeldis í Fossfirði á 1.500 tonna lífmassa af laxi. Umsókn um endurnýjun á núverandi rekstrarleyfi var móttekin þann 11. febrúar 2021. Starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður.

 

Deila: