Vilja fleiri skemmtiferðaskip til Siglufjarðar

Deila:

Gerður hefur verið samstarfssamningur milli Fjallabyggðar og Síldarminjasafns Íslands á Siglufirði um markaðssetningu Siglufjarðarhafnar sem ákjósanlegan viðkomustað skemmtiferðaskipa. Bæjarráð Fjallabyggðar samþykkti samninginn á fundi sínum þann 3. janúar og undirrituðu Sigríður Ingvarsdóttir, bæjarstjóri og Aníta Elefsen, safnstjóri Síldarminjasafns Íslands hann í Bátahúsinu í kjölfar staðfestingar bæjarráðs.

Samkomulagið gildir frá 1. janúar 2023 og er uppsegjanlegt af beggja hálfu með sex mánaða fyrirvara.

Fjallabyggðarhafnir eru aðili að hagsmunasamtökunum Cruise Iceland og Cruise Europe og eru sumar bókaðar 30 skipakomur til Siglufjarðar. Samningurinn er liður í stefnumótun í hafnamálum sem sveitarfélagið réðist í nýverið og ber yfirskriftina „Fjölbreytt og örugg hafnarstarfsemi; Stefna Fjallabyggðarhafna 2022-2030“.  Í þeirri stefnu eru sett fram markmið um að Siglufjarðarhöfn verði leiðandi í þjónustu við stærri skip í sjávarútvegi og ferðaþjónustu.

Á meðfylgjandi mynd er samningurinn staðfestur af þeim Sigríði Ingvarsdóttur, bæjarstjóra og Anítu Elefsen, safnstjóra Síldarminjasafns Íslands. Mynd: fjallabyggd.is

Deila: