Örn hjá LS: „Grásleppunefnd kemur saman í þessari viku“

Deila:

„Grásleppunefnd félagsins kemur saman í þessari viku og mun ræða þessi mál. Þá verður afstaða tekin til þessa frumvarps og umsögn skrifuð,“ segir Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, um áform ráðherra um að kvótasetja grásleppu.

Sjá hér: Grásleppa kvótasett í haust

Sambandið hefur lýst sig andsnúið áformum um kvótasetningu. Örn segist í samtali við Auðlindina ekki hafa orðið var við breytingar á því sjónarmiði, þrátt fyrir að frumvarpið nú sé svolítið frábrugðið fyrri frumvörpum sama efnis. Á síðasta aðalfundi félagsins, 2022, var svohljóðandi samþykkt gerð: „LS er andvígt kvótasetningu á grásleppu“

Á vef LS er vakin athygli á því hve skammur tími er veittur til að veita umsögn við frumvarpsdrögin. Umsagnir þurfa að berast fyrir 20. mars. „Þetta eru venjulega alltaf tvær vikur, svo þetta er afar stuttur tími,“ segir Örn.

Samþykkt síðasta aðalfundar LS, hvað grásleppuveiðar varðar:

  • LS samþykkir að skipulagi grásleppuveiða verði breytt þannig að bátar eigi kost á að gera hlé á veiðum án þess að dagafjöldi þeirra til veiða verði skertur.
  • LS mótmælir harðlega þeirri aðferðafræði sem hefur verið viðhöfð við útreikninga á meðafla í grásleppunet. Það er að segja uppreikning á fugli og sel úr veiðieftirlitsferðum Fiskistofu.
  • Varðandi flotrollsveiðar: Í ljósi sögunnar bendir LS á að það hefur aldrei verið betri grásleppugengd vítt og breytt um landið. LS fer þess á leit við ráðamenn þjóðarinnar að á sjómenn verði hlustað. Félagið ítrekar að óheimilt verði að nota flottroll við veiðar á loðnu.
  • LS er andvígt kvótasetningu á grásleppu.
  • LS telur nauðsynlegt að við ákvörðun heildarafla grásleppu sé tekið mið af markaðsaðstæðum á hverjum tíma en ekki eingöngu sveiflukenndu og vafasömu stofnstærðarmati Hafró.
  • Í ljósi þess að leiguverð á þorski er komið langt upp fyrir mögulegt söluverð á grásleppuþorski á markaði fer LS fram á að VS aflaheimild verði hækkuð umtalsvert við grásleppuveiðar.
  • LS vill að Fiskistofa beiti sér fyrir því að virkjun grásleppuleyfa verði auðveldari. Það er alger óhæfa að t.d í kringum páska, þurfi bátar að greiða leyfi á miðvikudegi fyrir páska, vilji þeir hefja veiðar á þriðjudegi eftir páska. Þar sem sífellt eru lagðar á smábátasjómenn meiri kröfur um aukna rafræni í samskiptum, þá ætti Fiskistofa að geta leyst þetta vandamál.
  • LS mótmælir harðlega enn og aftur þeirri ákvörðun að loka svæðum að fengsælum miðum við grásleppuveiðar í Faxaflóa vegna æðarvarps.
Deila: