Ufsakvótinn alltof stór

Deila:

„Ljósafellið er mjög gott skip og þó aldurinn sé vissulega nokkuð hár þá hefur útgerðin haldið því mjög vel við og ástand skipsins er þess vegna mjög gott. Mér hefur frá fyrsta degi liðið vel hér um borð og við í áhöfninni kunnum að meta það að útgerðin stendur sig vel í að halda skipinu í lagi. En auðvitað verður Ljósafellið ekki eilíft frekar en annað og einhvern tímann hlýtur að koma að þeim tímapunti að skipið verði endurnýjað og yngt upp,“ segir Kristján Gunnarsson, skipstjóri á ferskfisktogaranum Ljósafelli SU-70 á Fáskrúðsfirði. Ljósafellið er meðal allra elstu togara í flotanum og þann 31. maí síðastliðinn voru liðin nákvæmlega 50 ár síðan Loðnuvinnslan á Fáskrúðsfirði tók á móti skipinu. Allar götur síðan hefur Ljósafellið verið burðarás í hráefnisöflun fyrir bolfiskvinnslu Loðnuvinnslunnar og útgerðarsaga þess verið einstaklega farsæl.

Líkt og áður segir er Ljósafellið aðal hráefnisöflun fyrir bolfiskvinnslu Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði og þar er unnið úr þorski, ufsa og ýsu en karfi er seldur á markað eða í útflutning. „Í fyrra vorum við að nánast samfellt út kvótaárið en mér sýnist stefna í að við stoppum nú í síðari hluta júlí vegna minni kvóta og förum með skipið í slipp. Það er hins vegar þannig að þorskgengdin er mjög góð á miðunum og hefur verið í vetur. Við sjáum því ekki fylgni milli þorskgengdarinnar og samdráttarins sem varð í úthlutuðum þorskveiðiheimildum. Eina tegundin sem maður finnur verulega fyrir samdrætti í er ufsinn. Það er og hefur verið erfitt að ná honum síðustu árin og kvótinn ekki náðst. Þegar ég kom hingað fyrir 15 árum var hægt að ganga að góðum ufsaafla vísum en það hefur jafnt og þétt hallað undan fæti í ufsaveiðinni. Mín skoðun er sú að ufsakvótinn sé alltof stór og að það þurfi að skera hann verulega niður til að byggja stofninn upp á nýjan leik. Það eru alltof mörg skip að eltast við alltof fá kíló af ufsa með tilheyrandi ólíukostnaði,“ segir Kristján.

Ólíkt ufsanum segir hann að mikið sé að hafa af ýsu og að sá stofn virðist á hraðri uppleið. Áhersla á góða umgengni um borð Kristján segir áhöfn Ljósafells samheldna í því að halda skipinu í góðu ásigkomulagi, ganga vel um það og halda því snyrtilegu. „Umgengni er misjöfn milli skipa og það er einhvern veginn þannig að það skapast ákveðnar hefðir sem eru breytilegar milli skipa og útgerða. Hér fara menn um með þvottaföturnar á landstíminu og það er þrifið á dekkinu og í kringum veiðarfærin, rétt eins og í vinnslunni og annars staðar. Við förum aldrei upp að bryggju fyrr en búið er að þrífa eftir túrinn. Þetta er bara rútína sem áhöfnin vinnur eftir,“ segir hann.

Nánar er rætt við Kristján í nýjasta tölublaði Sóknarfæris.

Deila: