1.400 tonn af flottum makríl

Deila:

Gullberg VE kom til Eyja um hádegisbil á sunnudag með tæplega 1.400 tonn af makríl, 570 gramma fiski að því er fram kemur á vef Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum. Fram kemur að hluti af aflanum hafi verið úr öðrum skipum fyrirtækisins; Sighvati Bjarnasyni og Hugin.

Í fréttinni er rætt vi ðJón Atli Gunnarsson, skipstjóri á Gullbergi.

„Við vinnum saman á Vinnslustöðvarskipunum þegar það á við eins og í þessu tilviki þegar Gullberg náði 200 tonnum, Huginn öðrum 200 tonnum og Sighvatur 100 tonnum á sama tíma á sama blettinum. Samstarfshringurinn gaf þannig alls 500 tonn og við tókum þennan afla af Hugin og Sighvati um borð hjá okkur í restina á túrnum í blíðviðri og á spegilsléttum sjó. Hins vegar var biksvört þoka þegar við nálguðumst Hugin aðfaranótt laugardags en svo létti til,” segir hann.

Fram kemur að fiskurinn sé stór og flottur, 500 grömm og þar yfir. Hann virðist ganga gegnum færeysku lögsöguna inn í þá íslensku, óvenju vestarlega samanborið við sumarið 2022. Þetta líkist meira því sem gerðist 2010-2017, að því er segir í fréttinni.

„Við höfum heyrt að veiði hafi verið frekar dræm í Smugunni hjá rússneskum og grænlenskum skipum og að makríllinn sé mun smærri þar en sá sem við veiðum nú, 300 til 350 gramma fiskur. Kann samt að vera að ástandið hafi breyst til batnaðar í Smugunni hvað aflabrögð varðar og stærð fiskjarins enda nokkuð um liðið frá því fréttir bárust þaðan.”

Deila: