Birna vill í stjórn Iceland Seafood

Deila:

Birna Ein­ars­dótt­ir, sem nýverið lét af störfum sem banka­stjóri Íslands­banka, mun taka sæti í nýrri stjórn Ice­land Sea­food In­ternati­onal hf. (ISI) í kjöl­far aðal­fund­ar fé­lags­ins sem fram fer á morg­un. Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins til Kauphallarinnar.

Þar segir að fimm framboð hafi komið fram í stjórn félagsins en framboðsfresturinn rann út 19. október.

Aðrir í framboði til stjórnar eru Jakob Valgeir Flosasón, Ingunn Agnes Kro, Bergþór Baldvinsson og Halldór Leifsson.

Deila: