Fjarar undan kolmunaveiðum

Deila:

Svo virðist vera að kolmunnaveiðarnar í færeysku lögsögunni séu að fjara út. Veðrið hefur verið slæmt á miðunum og það hefur truflað veiðar verulega. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar.

Fram kemur að Barði, Beitir og Börkur séu á miðunum En Margrét og Vilhelm á landleið og séu hætt á kolmunaveiðum að sinni. Á undanförnum árum hefur kolmunnaveiðunum í færeysku lögsögunni á þessum árstíma venjulega lokið seint í janúarmánuði eða í byrjun febrúar, að því er segir í fréttinni.

Rætt er við Hafþór Eiríksson, rekstrarstjóra fiskimjölsverksmiðja Síldarvinnslunnar. Hann segir að vel hafi gengið að vinna kolmunnann að undanförnu. „Verksmiðjurnar í Neskaupstað og á Seyðisfirði hafa hvor um sig tekið á móti 6.000 – 7.000 tonnum og kolmunninn hefur verið afar gott hráefni til vinnslu. Í Neskaupstað er samhliða vinnslunni verið að setja upp tæki í nýja og endurbætta verksmiðju og einmitt núna er verið að undirbúa uppsetningu á nýjum þurrkara þannig að þar er býsna mikið um að vera,“ segir Hafþór.

Deila: