Fá ekki að landa í Grindavík

Deila:

Í morgun stóð til að landa úr skipum í Grindvíkurhöfn en það var ákvörðun viðbragðsaðila að heimila það ekki m.a. vegna mengunarhættu og óvissu með framgang hraunrennslis fyrir ofan Suðurstrandarveg. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurnesjum.

Þar segir að hrauntjörn hafi myndast skammt frá enda hraunjaðarsins ofan við Suðurstrandarveg.

„Er því viðbragðsaðilum sem öðrum haldið frá hraunjaðrinum á meðan hætta er talin á að hraun geti flætt þar fram á miklum hraða. Enn er hætta á að hraun renni yfir Suðurstrandarveg. Í dag er mikil brennisteinsmengun á svæðinu. Þá er hluti Grindavíkurvegar undir hrauni og sú flóttaleið úr sögunni í einhverja daga.”

Deila: