Sjálfkjörið í stjórn Brims
Sjálfkjörið verður í stjórn Brims hf. á aðalfundi félagsins sem fram fer 21. mars næstkomandi. Aðeins fimm eru í framboði eða jafn margir og þau sæti í stjórn sem kjósa á um á fundinum. Þar sem frambjóðendur eru jafnmargir og þeir stjórnarmenn sem á að kjósa á fundinum og samsetning stjórnar fullnægir ákvæðum laga og samþykkta félagsins um kynjahlutföll er sjálfkjörið í stjórnarsætin fimm.
Eftirtaldir einstaklingar bjóða sig fram í kjöri til stjórnar Brims hf. á aðalfundi félagsins 21. mars 2024
- Anna G. Sverrisdóttir
- Hjálmar Þór Kristjánsson
- Kristján Þ. Davíðsson
- Kristrún Heimisdóttir
- Magnús Gústafsson
Nánari upplýsingar um frambjóðendur liggja frammi á skrifstofu félagsins, í meðfylgjandi viðhengi og á heimasíðu félagsins www.brim.is/is/fjarfestar/adalfundur