Svandís snýr aftur
![](https://audlindin.is/wp-content/uploads/2023/09/Svandis-bio-750x375.jpg)
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra snýr aftur til starfa á morgun, að loknu veikindaleyfi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðherranum. Svandís hefur verið í veikindaleyfi í fjóra mánuði vegna krabbameins í brjósti.
„Ég kem aftur til starfa á morgun að loknu veikindaleyfi. Meðferðin hefur gengið afbragðs vel, horfur góðar og mér líður vel,“ segir Svandís í tilkynningunni.
„Framundan er eftirlit og eftirfylgni, bjartsýni og fullvissa um bjartari tíð. Ég er þakklát fyrir allar kveðjurnar, hlýjuna og góðar óskir og hlakka til verkefnanna framundan!“