Sótt um strandveiðar með rafrænum skilríkjum

Deila:

Þegar reglugerð um strandveiðar verður gefin út verður hægt að sækja um strandveiðileyfi með rafrænum skilríkjum í stafrænni umsóknargátt á Ísland.is. Þetta kemur fram á vef Fiskistofu í dag.

Þar er minnt á að einungis sé heimilt að veita útgerð eða eiganda fiskiskips leyfi til strandveiða fyrir eitt skip.

Fiskistofa styðst við opinberar upplýsingar úr skipaskrá Samgöngustofu og skráningu raunverulegra eigenda lögaðila hjá fyrirtækjaskrá Skattsins áður en leyfi til strandveiða er veitt.

Áður en sótt er um strandveiðileyfi þurfa eftirfarandi skráningar að vera réttar:

Leiðbeiningar um skráningu á raunverulegum eigendum:

Afgreiðsla strandveiðileyfis getur tafist ef opinberar upplýsingar um eignarhald eru misvísandi eða sýna ekki fram á eignarhald allra þeirra aðila sem eiga eða gera út skip. Fiskistofa mun þurfa að taka þau tilvik til sérstakrar skoðunar með tilheyrandi gagnaöflun.

Deila: