Vinnslubúnaður DNG í mikilli sókn

Deila:

„DNG vinnslubúnaðurinn er í mikilli sókn hjá okkur og vakti mikla athygli sýningargesta sú tæknilega geta sem við höfum til framleiðslu á vinnslukerfum, bæði heildarlausnum og einstökum tæknilausnum, allt frá hönnunarstigi þar til búnaðurinn er kominn upp og í notkun hjá viðskiptavinum. Viðskiptavinir sjá mikil tækifæri og hagræði að nýta sér þá miklu breidd sem við höfum í þjónustu og framleiðslu á búnaði hjá Slippnum Akureyri og sýningin núna undirstrikaði það. Við erum því hæstánægð með sýninguna og teljum hana hafa verið mjög árangursríka.“

Þetta kemur fram í máli Hilmars Guðmundssonar, sölu- og markaðsstjóra hjá Slippnum á Akureyri, á frétt á vef fyrirtækisins vegna sjávarútveggsýningarinnar í Barcelona, sem nú er lokið. Slippurinn Akureyri var með 40 fermetra bás á sýningunni og var í hópi íslenskra fyrirtækja sem kynntu sína vörur og þjónustu í samstarfi við Íslandsstofu. Sýningin dregur að sér sýnendur og víða að úr heiminum og er því meðal allra stærstu viðburða hvers árs í greininni.

„Hér á sýningunni kynntum við það sem við höfum að bjóða í skipaþjónustu þar sem við státum t.d. af öflugum upptökumannvirkjum og sérþekkingu í viðhaldi skipa, viðgerðum, málmsmíði, vélbúnaði og öðrum þáttum sem útgerðir þurfa á að halda. Við finnum líka að viðskiptavinir sjá mikla kosti í að geta sótt okkar öflugu þjónustu miðsvæðis við Norður-Atlantshaf,“ segir Hilmar en auk skipaþjónustunnar lagði fyrirtækið áherslu á að kynna tæknlausnir undir merkjum DNG vinnslubúnaðar, en þar er um að ræða bæði búnað fyrir skip sem vinnslur í landi.

Deila: