Hvaða bræðslukall er ekki eftirminnilegur?
Verksmiðjustjóri Fiskimjölsverksmiðju Eskju er maður vikunnar á Kvótanum þessa vikuna. Við höldum okkur fyrir austan þar sem fjörið er núna í makrílnum. Hann hefur aldrei gert annað en að vinna í fiski og skemmtilegasti tíminn hefur verið á síðustu árum við uppbyggingu Eskju frá grunni.
Nafn?
Haukur Líndal Jónsson.
Hvaðan ertu?
Eskifirði
Fjölskylduhagir?
Giftur og búið með sömu elskunni í 40 ár.
Hvar starfar þú núna?
Verksmiðjustjóri Fiskimjölverksmiðju Eskju.
Hvenær hófst þú vinnu við sjávarútveg?
Hef aldrei gert annað, ætli ég hafi ekki byrjað að rúlla lýsistunnum í lifrarvinnslunni sem einu sinni var í gömlu verksmiðjunni.
Hvað er það skemmtilegasta við að vinna við íslenskan sjávarútveg?
Það er alltaf gaman í vinnunni, en ég held samt að seinustu ár hjá Eskju hafa verið þau skemmtilegustu, hér er búið að byggja fyrirtækið algjörlega upp frá grunni og hef ég fengið að taka þátt í því.
En það erfiðasta?
Að vera á fundum með verkfræðingum.
Hvað er það skrýtnasta sem þú hefur lent í í störfum þínum?
Það er ekki kominn tíma á að upplýsa það enn og bíður betri tíma.
Hver eftirminnilegasti vinnufélagi þinn?
Ég hef alltaf haft góða vinnufélaga og get bara ekki gert upp á milli, hvaða bræðslukall er ekki eftirminnilegur.
Hver eru áhugamál þín?
Vakna á morgnana og fara í sund/ferðalög/elda og borða góðan mat.
Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?
RJÚPA/Kótelettur á sjoppunni.
Hvert færir þú í draumfríið?
Eitthvað með fjölskyldunni börnum og barnabörnum og síðan í góða gönguferð til Ítalíu með Jóni Karli og Ágústu hjá Fararsniði.