Aukinn afli á krókana

Deila:

Afli krókaaflamarksbáta jókst á fyrsta ársfjórðungi fiskveiðiársins miðað við sama tíma í fyrra.  Alls veiddu þeir 11.292 tonn af þorski sem er aukning um 6,8% miðað við tímabilið september – nóvember á síðasta fiskveiðiári og af ýsu 3.862 tonn sem 13,3% meira en í fyrra samkvæmt samantekt á heimasíðu Landssambands smábátaeigenda.

Aflinn hjá krókaaflamarksbátum nú svarar til 15,3% heildarafla í þorski og 26,5% af ýsunni.

Heildarbotnfiskafli krókaflamarksbáta var kominn í 16.243 tonn að loknum fyrsta ársfjórðungi þessa fiskveiðiárs sem er um 1.300 tonna aukning frá sama tíma í fyrra.

 

Deila: