Fiskistofa boðar drónaeftirlit
Eftirlitsmenn Fiskistofu munu fljúga ómönnuðum loftförum til eftirlits í febrúar og viljum við minna á að allar upptökur eru skoðaðar vel og fiskur sem fer fyrir borð er tegundargreindur. Þetta kemur fram á vef stofnunarinnar. Þar eru sjómenn og útgerðarmenn hvattir til að kynna sér vel reglur og lög um stjórn fiskveiða.
Nokkur atriði til að huga að:
-
Óhætt er að sleppa hlýra og ef hann er lífvænlegur.
-
Skylt er sleppa beinhákarli, háfi og hámeri, ef lífvænleg.
-
Heimilt er að sleppa lífvænlegri tindaskötu.
-
Sleppa á grásleppu sem fæst í þorskfiskanet.
-
Heimilt er að sleppa lífvænlegum rauðmaga við hrognkelsaveiðar.
-
Komi lúða um borð í veiðiskip sem meðafli á umsvifalaust að sleppa lífvænlegri lúðu.
-
Við línuveiðar skal sleppa allri lúðu með því að skera á taum línunnar.
-
Við handfæra- og sjóstangaveiðar á að losa lúðu varfærnislega af krókum eða skera á lykkju slóðans áður en lúða kemur um borð.