Hlutfall kælimiðils mjög mismunandi

Deila:

Á þriggja mánaða fresti birtir Fiskistofa upplýsingar um hlutfall kælimiðils í afla við endurvigtun. Þegar haft er eftirlit með vigtun eru sýndar allar landanir þeirra skipa sem yfirstöður veiðieftirlitsmanna taka til hjá þeim vigtunarleyfishafa sem eftirlitið fer fram hjá hverju sinni og fyrir þá fisktegund sem skilar mestu aflamagni.

Fiskistofa birtir nú upplýsingar um vigtanir hjá vigtunarleyfishöfum þar sem eftirlitsmenn hafa staðið yfir vigtun á tímabilinu október til desember 2016.

Niðurstöður vigtana, þ.e. veiðiskip, vigtunarleyfishafi, vegin fisktegund, magn og hlutfall kælimiðils er flokkað eftir dagsetningu löndunar og sú vigtun þar sem eftirlitsmaður stóð er auðkennd með blárri súlu.

Hlutfalla kælimiðils var mjög mismunandi eftir veiðiferðum, allt frá því að vera ekkert og upp í 50%. Oftast var hlutfall kæli miðils í neðri kantinum Þegar eftirlitsmaður frá Fiskistofu var viðstaddur. Hér má sjá útkomuna.

Hlutfall kælimiðils  í bolfiskafla við endurvigtun október til desember 2016

 

Deila: