Krókakallinn Atli

Deila:

Atli Jóhannesson flutti sig um set þegar hann hætti að vinna en hann hafði verið viðloðandi Eskju i um það bil 43 ár, bæði sem verkstjóri  og rekstrarstjóri yfir lönduninni i um 10 ár.  Þegar þetta var búið og kallinn kominn á eftirlaun ákváðu þau hjónin að flytja til Akureyrar og keyptu sér litla íbúð við Brekkugötu 45. Þar hefur Atli verið að dunda við að hnýta handfærakróka og búa til makrílslóða.

Ekki er yfirbyggingin stór aðeins 1,95 fermetri. Að sögn Atla er þetta passlegt því þá koma fáir í kaffi og ekki miklar frátafir frá vinnu. „En ég hef samt góða menn í kringum mig. Fyrir skömmu var hannaður nýr krókur sem hitti beint í mark. Nokkrir hafa prufað hann og segja hann þann besta á markaðnum. Þeir  sem hafa prufað hann eru Unnsteinn á Sigga Bessa SF, Guðjón á Óla Gísla og Magni á Tjúlla ásamt fleirum.“

Stöðugt er verið að hugsa um nýjungar og er von á þeim vorið 2018, en Ásfiskur, fyrirtæki Atla, heldur utanum framleiðsluna á krókunum og slóðunum og gerir hann sér vonir um að opna heimasíðu fyrirtækisins innan tveggja vikna eða í  lok febrúar, að sögn Atla sem var hinn brattasti þegar heimasíða Þorgeirs Baldurssonar tók hús á honum.

Fleiri myndir má sjá á slóðinni http://thorgeirbald.123.is/

 

 

Deila: