Akranesbær tilbúinn til samstarfs um hafnargerð

Deila:

Bæjarstjórn Akraness óskar eftir því við stjórn HB Granda að fresta um mánuð áformum um lokun botnfiskvinnslu á Akranesi og endurskoði áform sín. Er það meðal annars gert í ljósi þess að bæjarstjórnin lýsir sig reiðubúna til samstarfs um hafnargerð til að greiða fyrir áframhaldandi fiskvinnslu HB Grand á Akranesi.

Á fundi bæjarstjórnar Akraness, sem hófst kl. 17 í dag þann 28. mars, var svohljóðandi viljayfirlýsing einróma samþykkt meðal bæjarfulltrúa:

„Bæjarstjórn Akraness lýsir yfir eindregnum vilja til að ganga frá samkomulagi við HB Granda og Faxaflóahafnir um gerð landfyllingar og nauðsynlegar endurbætur á hafnaraðstöðu við Akraneshöfn til að unnt sé að koma til framkvæmda áformum fyrirtækisins frá 2007 og 2014 um uppbyggingu á Akranesi.

Bæjarstjórn Akraness er tilbúin að ná samkomulagi við HB Granda og Faxaflóahafnir um eftirtalin atriði:

  • Landfyllingu sem verði u.þ.b. 40.000 m2 ásamt tilheyrandi sjóvörn.
  • Á landfyllingunni verða skipulagðar lóðir fyrir starfsemi HB Granda m.a. fyrir fiskvinnsluhús, frystigeymslu og uppsjávarvinnsluhús
  • Akraneskaupstaður annast nauðsynlegt skipulag svæðisins, aðalskipulag og deiliskipulag. Umhverfisfyrirspurn og ef nauðsyn krefur, umhverfismati, verði lokið og unnið verði eftir markmiðum HB Granda um samfélagslega ábyrgð.
  • HB Grandi reisi fiskivinnsluhús, frystigeymslu og uppsjávarvinnsluhús.
  • Orkuveita Reykjavíkur ljúki við tengingar og lagningu veitukerfa vatns, hitaveitu, rafmagns og fráveitu.

Bæjarstjórn Akraness leggur fram meðfylgjandi fjórar tillögur um útfærslur og er sveitarfélagið nú sem fyrr reiðubúið að vinna ötullega að lausnum sem tryggja munu starfsemi þessa öfluga fyrirtækis á Akranesi og nauðsynlega framþróun þess hvort sem litið er til landrýmis vegna landvinnslu eða hafnaraðstöðu.

Bæjarstjórn Akraness óskar eftir því við stjórn HB Granda að fresta um mánuð áformum um lokun botnfiskvinnslu á Akranesi og endurskoði áform sín í ljósi ofangreinds.  Með þessu gefst bæjarstjóra og forstjóra HB Granda svigrúm til að skoða til hlítar aðra þá kosti sem eru í stöðunni, bæjarfélaginu og fyrirtækinu til heilla. Samofin saga HB Granda og Akraneskaupstaðar er of mikilvæg og verðmæt til að henni verði kollvarpað í einu vetfangi. Því ber aðilum skylda til að leita allra leiða til farsællar lausnar.“

HJÁLAGÐAR TILLÖGUR MÁ SKOÐA HÉR 

 

 

Deila: