Við erum afar stolt og ánægð

Deila:

Engey RE 91, nýr ísfisktogari HB Granda, kemur til hafnar í Reykjavík í dag frá Akranesi. Engey kom til landsins 25. janúar sl. að lokinni 15 sólarhringa siglingu frá Celiktrans skipasmíðastöðinni í Istanbúl í Tyrklandi þar sem skipið var smíðað. Frá komu skipsins til landsins hefur sjálfvirku lestarkerfi ásamt búnaði á vinnsludekk verið komið fyrir í skipinu á Akranesi. Búnaðurinn, sem er sá fyrsti sinnar tegundar, hefur fyrirtækið Skaginn 3X hannað, þróað og smíðað á Akranesi og á Ísafirði. Búnaðurinn mun stórbæta vinnuumhverfi sjómanna um borð auk þess sem hann mun auka afkastagetu skipsins og hámarka virði afurða úr afla þess.

,,Við erum afar ánægð og stolt að taka á móti Engey RE 91 sem er glæsilegur ísfisktogari og án efa eitt tæknivæddasta fiskiskip landsins. Við munum taka á móti tveimur ísfisktogurum, Akurey og Viðey, í flotann á næstu mánuðum en þau skip verða með sama búnaðinum og er í Engey. Við reiknum með að Engey fari í sína fyrstu veiðiferð í lok apríl,” segir Vilhjálmur Vilhjálmsson, forstjóri HB Granda.

,,Um að ræða stærsta þróunarverkefni sem ráðist hefur verið í um borð í fiskiskipi hérlendis. Þessi nýja tækni grundvallast fyrst og fremst á nýjum aðferðum við meðhöndlun fisksins og aukinni sjálfvirkni í vinnslukerfinu sem flýtir aðgerð og frágangi á afla sem skilar mun betri gæðum. Með nýrri myndavélatækni er hver einasti fiskur myndaður, tegundagreindur og stærðarflokkaður. Myndavélatæknin heldur utan um allan feril fisksins allt þar til að löndun lokinni. Með þessu erum við komin með möguleika á rekjanleikakerfi sem á sér enga hliðstæðu allt frá veiðum til neyslu, ef menn kjósa svo,” segir Ingólfur Árnason, framkvæmdastjóri Skaginn 3X, en fyrirtækið fékk á dögunum Nýsköpunarverðlaun Íslands fyrir þennan nýja búnað.

,,Þetta er annað skipið sem er búið hinu byltingakennda SUB-CHILLING™ kerfi, sem gerir kleift að kæla fiskinn niður að -1°C án þess að frysta hann. Með þessari tækni er hægt að geyma fiskinn í körum án þess að nota ís. Skaginn 3X hefur sótt um sex ný einkaleyfi fyrir vinnslubúnaðinn sem settur var um borð í Engey,” segir Ingólfur ennfremur.

Nautic ehf. sá um hönnun skipsins. Samtals eru klefar fyrir 17 manns um borð í skipinu, 15 eins manns klefar og einn tveggja manna klefi. Móttökuathöfn verður við Norðurgarð í Reykjavíkurhöfn klukkan 14 í dag. Engey verður síðan almenningi til sýnis á morgun, laugardag frá kl. 13-16.

 

Deila: