Skag­inn 3X hlýt­ur útflutningsverðlaun forseta íslands

Deila:

Skaginn 3X útflutningsverðlaunÍslenska tækni- og framleiðslufyrirtækið Skaginn 3x hefur hlotið Útflutningsverðlaun forseta Íslands. Ingólfur Árnason, framkvæmdastjóri Skagans veitti verðlaununum viðtöku við hátíðalega athöfn á Bessastöðum hlaut síðdegis á miðvikudag.

Skaginn 3x varð fyrir valinu vegna árangurs í þróun, framleiðslu og sölu tækjabúnaðar fyrir matvælaiðnaðinn, einkum fiskvinnsluna. Í fréttatilkynningu Íslandsstofu kemur fram að fyrirtækið er í fremstu röð þeirra íslensku fyrirtækja sem hafa náð að brjóta sér leið inn á alþjóðlegan matvælamarkað með framleiðsluvörur sem í upphafi eru þróaðar í nánu samstarfi við íslensk framleiðslufyrirtæki. Sérstaða Skagans er fólgin í byltingarkenndum tækninýjungum hvað varðar íslausa kælingu á matvælum, sjálfvirkni og lausnum við pökkun og flutning á afurðunum. Skaginn hlaut einnig þann 30. mars sl. Nýsköpunarverðlaun Íslands og er fyrsta fyrirtækið til að hljóta bæði Nýsköpunarverðlaun Íslands og Útflutningsverðlaun forseta Íslands á sama árinu.

Útflutningsverðlaunin eru veitt í 29. sinn en þau voru fyrst veitt árið 1989. Meðal annarra fyrirtækja er hlotið hafa verðlaunin í gegnum tíðina eru Bláa lónið, CCP, Hampiðjan, Trefjar ehf, Icelandair Group og Ferðaskrifstofa bænda, og á síðasta ári hlaut Nox Medical verðlaunin.

Tilgangurinn með veitingu útflutningsverðlaunanna er að vekja athygli á  þjóðhagslegu mikilvægi gjaldeyrisöflunar og alþjóðlegra viðskipta og heiðra þá sem hafa náð sérstaklega góðum árangri í sölu og markaðssetningu á íslenskum vörum og þjónustu erlendis.

Í úthlutunarnefndinni sátu að þessu sinni: Örnólfur Thorsson, frá embætti forseta Íslands, Runólfur Smári Steinþórsson, frá viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands, Björgólfur Jóhannsson frá Viðskiptaráði, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, frá Alþýðusambandi Íslands og Sigsteinn Grétarsson frá Íslandsstofu, en Íslandsstofa ber ábyrgð á undirbúningi og kostnaði við verðlaunaveitinguna.

 

Deila: