Fiskverð ígildi hamfara

Deila:

Smábátaeigendur eru þessa dagana rasandi yfir lágu fiskverði.  Í gær 10. maí var meðalverð á mörkuðum fyrir óslægðan þorsk 192 kr/kg.  Á bakvið þau viðskipti liggja 77 tonn, þar af 40 tonn veitt á handfæri.  Sama dag í fyrra voru sambærilegar tölur:  236 kr/kg, 264 tonn og 173 tonn. Frá þessu er greint á heimasíðu Landssambands smábátaeigenda.

„Taka má undir orð Ólafs Hallgrímssonar formanns Félags smábátaeigenda á Austurlandi og stjórnarmanns í LS, „fiskverðið nú er ígildi hamfara“.  Hvað er eiginlega að? spyr Ólafur.“

Taflan sem hér fylgir sýnir meðalverð á óslægðum þorski sl. 6 ár, fyrstu 10 dagana í maí.  Athygli vekur að kílóverðið nú er 101 kr. lægra en það var 2012.  Það þarf því að veiða 15,3 tonn í dag til að fá sama aflaverðmæti og 10 tonn gáfu fyrir sex árum.

Fiskverð hamfarir

 

Deila: