Ríkið „aflahæst“ á svæði A

Deila:

Á strandveiðisvæði A í maí fóru alls 133 bátar framyfir 650 kg hámarkið í slægðum afla sem landa má í einni veiðiferð. Alls stunduðu 193 bátar strandveiðar á svæði A í mánuðinum og því lentu um 70% þeirra í einhverjum umframafla. Svæði A er svæðið frá Arnarstapa vestur til Súðavíkur.

Uppsafnaður umframafli mánaðarins var vissulega mjög misjafn eftir bátum eða frá einu kílói upp í tæplega fimm hundruð kíló. Sá bátur sem veiddi mestan umframafla var Hrólfur SH 79 með 484 kg. Næstur kom Heppinn ÍS 74 með 353 kg. Í töflunni hér að neðan má sjá þá tíu báta sem fóru mest framúr á svæði A í maímánuði.

Strandveiðar umframafli

Fiskistofa minnir á að andvirði alls umframafla á strandveiðum verður innheimt af útgerðunum og rennur til ríkisins í Verkefnasjóð sjávarútvegs. Umframaflinn dregst eftir sem áður frá leyfilegum heildarafla á strandveiðunum svo að minna verður til skiptanna. Það er því hagur allra strandveiðimanna að veiða ekki umfram heimildir. Alls nam umframafli strandveiðibáta á svæði A í maí rúmum 12,2 tonnum.

Aflahæsti strandveiðibáturinn á svæði A í maí? – Klárlega ríkið!

 

Deila: