4.600 milljónir til hins opinbera

Deila:

Rekstrartekjur Síldarvinnslunnar og samstæðunnar á árinu 2016 voru alls 18,4 milljarðar króna og rekstrargjöld námu 13,0 milljörðum króna.  EBITDA var 5.400 milljónir króna.   Fjármagnsliðir voru jákvæðir um 580 milljónir króna. Hagnaður samstæðunnar fyrir reiknaða skatta nam 5.100 milljónum króna. Reiknaður tekjuskattur nam 1.000 milljónum króna og var hagnaður ársins því 4.100 milljónir króna.

Gjöld til hins opinbera

Á árinu 2016 greiddi Síldarvinnslan og starfsmenn 4.600 milljónir króna  til hins opinbera. Greiddur tekjuskattur og veiðigjöld námu samtals 2.000 milljónum króna. Starfsmenn fyrirtækisins greiddu 1.300 milljónir í staðgreiðslu af launum.

Fjárfestingar

Samtals námu fjárfestingar félagsins 2.600 milljónum króna og voru þær þáttur í að auka verðmætasköpun félagsins. Stærsta einstaka fjárfesting ársins voru kaup félagsins á 37,2% hlut í Runólfi Hallfreðssyni ehf. sem gerir út uppsjávarskipið Bjarna Ólafsson AK. Eftir kaupin á Síldarvinnslan 75,2% hlut í félaginu. Helstu fjárfestingarnar í fastafjármunum voru áframhaldandi uppbygging á  uppsjávarvinnslu félagsins.

Efnahagur

Heildareignir samstæðunnar í árslok 2016 voru bókfærðar á 46,6 milljarða króna. Veltufjármunir voru bókfærðir á 9 milljarða króna og skuldir og skuldbindingar samstæðunnar námu 17,3  milljörðum króna. Eigið fé samstæðunnar í árslok var 29,3 milljarðar króna.   Í árslok var eiginfjárhlutfall samstæðunnar 63%.

Starfsemi

Útgerð félagsins gekk vel á árinu. Afli bolfiskskipa samstæðunnar var um 19.500 tonn að verðmæti 4.700 milljónir króna. Afli uppsjávarskipa var 118 þúsund tonn að verðmæti 4.500 milljónir. Heildaraflaverðmæti afla skipanna var 9.300 milljónir króna og aflamagn 138.000 tonn á árinu.

Fiskimjölsverksmiðjur Síldarvinnslunnar tóku á móti um 124 þúsund tonnum af hráefni á árinu 2016. Framleidd voru 28 þúsund tonn af mjöli og 8 þúsund tonn af lýsi. Samtals voru framleidd 36 þúsund tonn af mjöli og lýsi á árinu að verðmæti 6.800 milljónir króna.

Í uppsjávarvinnsluna var landað 53 þúsund tonnum af hráefni. Framleiddar afurðir voru tæp 40 þúsund tonn. Þar vega makrílafurðir þyngst og síðan síldarafurðir og loks loðnuafurðir.  Verðmæti framleiðslunnar var 7.200 milljónir króna.

Um frystigeymslurnar fóru 74 þúsund tonn af afurðum á árinu.

Samtals nam framleiðsla á afurðum rúmum 90 þúsund tonnum á árinu 2016 að verðmæti 18,2 milljarðar króna.

Starfsmenn

Hjá samstæðu Síldarvinnslunnar störfuðu 347 manns til sjós og lands um síðustu áramót. Launagreiðslur félagsins voru rúmar 3.800 milljónir króna á árinu 2016 en af þeim greiddu starfsmenn 1.300 milljónir í skatta.

Aðalfundur

Á fundinum var samþykkt að greiða 1.200 milljónir króna í arð til hluthafa fyrir rekstrarárið 2016. Þá var samþykkt að laun stjórnarmanna yrðu 165 þúsund kr. á mánuði.

Deila: