ICES leggur til verulegan niðurskurð á makrílveiðum

Deila:

Alþjóða hafrannsóknaráðið, ICES, leggur til verulegan niðurskurð á makrílveiðum í Norðaustur-Atlantshafi á næsta ári. Einnig er lagt til að veiðar á norsk-íslenskri síld verði minnkaðar, en kolmunnaveiðar verði svipaðar og áður var lagt til fyrir þetta ár.

Í vikunni lauk fundi ráðgjafarnefndar Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES) þar sem m.a. var fjallað um ráðgjöf um heildarafla norsk-íslenskrar vorgotssíldar, kolmunna og makríls í Norðaustur-Atlantshafi fyrir árið 2018. Íslendingar stunda umtalsverðar veiðar úr þeim stofnum.

Makríll: ICES leggur til, í samræmi við nýtingarstefnu sem mun leiða til hámarksafraksturs til lengri tíma litið (MSY), að afli ársins 2018 verði ekki meiri en 551 þúsund tonn. Ráðgjöf fyrir árið 2017 var rúm 857 þúsund tonn og gert er ráð fyrir að aflinn í ár verði tæplega 1,2 milljónir tonna. Er því um að ræða ríflega 35% lækkun í ráðlögðum heildarafla.

Norsk–íslensk síld: ICES ráðleggur, í samræmi við samþykkta aflareglu strandríkja, að afli ársins 2018 verði ekki meiri en 546 þúsund tonn. Ráðgjöf fyrir árið 2017 var 646 þúsund tonn og er því um 15% lækkun ráðlagðs heildarafla að ræða. ICES gerir ráð fyrir því að aflinn í ár verði rúmlega 805 þúsund tonn.

Kolmunni: ICES leggur til, í samræmi við langtímanýtingarstefnu, að afli ársins 2018 verði ekki meiri en 1,39 milljón tonn. Ráðgjöf fyrir árið 2017 var svipuð eða 1,34 milljón tonn en gert er ráð fyrir að aflinn á árinu verði um 1,55 milljón tonn.

 lesa ráðgjöfina á vef ICES.

 

Deila: