Allt rígvæn síld

Deila:

Venus NS kom til Vopnafjarðar með 1.260 tonn af síld nú síðdegis. Síldin fékkst í fjórum holum á um sólarhring í Héraðsflóadjúpi en frá veiðisvæðinu er um fimm tíma sigling til Vopnafjarðar.
Bergur Einarsson skipstjóri á Venusi er ánægður með byrjun síldveiðanna.
,,Þetta er okkar annar hreini síldveiðitúr en fyrir helgina vorum við á Vopnafirði með 1.360 tonna afla. Við byrjuðum reyndar á um 600 tonnum af síld sem við fengum í lok makrílveiðiferðar þannig að við erum alls komnir með um 3.200 tonn af síld,“ segir hann í samtali á heimasíðu Brims.
Að sögn Bergs átti hann allt eins von á því að síldin væri gengin út úr Héraðsflóanum og það hafi því komið þægilega á óvart að þar hafi verið mikið af síld er Venus kom á miðin.
,,Það er eins og síldin hafi gengið út í kantinn og snúið þar við í stað þess að ganga lengra út á djúpið. Þetta er allt rígvæn síld og hentar mjög vel til vinnslu,“ segir Bergur Einarsson.
Notuð eru tvö troll um borð í Venusi. Þar af er annað nýtt 2048 Gloríu Helix síldarflottroll af svokallaðri 2019 útfærslu. Hefur það reynst vel á síldveiðum Venusar.

 

 

Deila: