Trefjar selja bát til Hjaltlands

Deila:

Trefjar afgreiddu á dögunum nýjan Cleopatra bát til Hvalseyjar (Whalsey) sem er hluti af Hjaltlandseyjum.
Að útgerðinni stendur Allister Irvine skipstjóri frá Whalsey sem jafnframt er skipstjóri á bátnum.

Nýji báturinn hefur hlotið nafnið Spindrift. Báturinn er 11 brúttótonn. Spindrift er af gerðinni Cleopatra 33.

Aðalvél bátsins er af gerðinni Doosan L086TIM 315hp tengd ZF 286IV gír.
Siglingatæki koma frá Furuno. Báturinn er með uppsettar MaxSEA skipstjórnartölvu.
Hann einnig útbúin með hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu bátsins.
Báturinn er útbúinn til netaveiða og handfæraveiða. Makrílkerfi er um borð.
Hífingarbóma er um borð til að auðvelda löndun úr bátnum.
Öryggisbúnaður bátsins er frá Viking.

Rými er fyrir 15 stk. 380 lítra kör í lest. Í vistarverum er, svefnpláss fyrir þrjá auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.

Að sögn útgerðarinnar mun báturinn verða gerður út frá Whalsey allt árið, báturinn hefur þegar hafið veiðar.

 

Deila: