Tankferð til Hirtshals

Deila:

Dagana 28 nóvember til 2.  desember nk. mun Hampiðjan standa fyrir hinni árlegu kynningu sinni á veiðarfærum fyrirtækisins í tilraunatanknum í Nordsjöcenter í Hirtshals í Danmörku.

Auk kynningar á því hvernig veiðarfærin virka við sem raunverulegastar aðstæður verða haldnir fyrirlestrar um þróun í gerð veiðarfæra og kynntar nýjungar í flottrollum, botntrollum og hlerum sem Hampiðjan og toghleraframleiðandinn Thyborøn bjóða upp á.

Fulltrúar íslenskra útgerða verða að vanda fjölmennir ásamt fulltrúum erlendra útgerða hvaðanæva að úr heiminum.

„Flugfélög eru orðin nokkuð ströng á því að hópferðir séu bókaðar með góðum fyrirvara. Við biðjum væntanlega þátttakendur að taka tillit til þess og vera í sambandi við okkur sem fyrst , með nöfn væntanlega þátttakenda,“ segir meðal annars á heimasíðu Hampiðjunnar. Þar segir ennfremur:

„Íslenskir Þátttakendur fljúga utan 28. nóvember en brottför heim verður þann 2. desember. Margir nota helgina 1- 3. desember til að spóka sig um í Kaupmannahöfn, enda jólaundirbúningur Dana í hámarki á þessum tíma og borgin skreytt í jólalitunum. Góð stemning hefur alltaf skapast í þessum ferðum og margir sem hitta þar betri helminginn og eiga ánægjulega helgi saman. Hampiðjan hefur pantað hótelherbergi á Mariott hotel Copenhagen http://www.marriott.com/hotels/travel/cphdk-copenhagen-marriott-hotel/ í hjarta Kaupmannahafnar. Þeir sem vilja verja helginni með okkur geta verið í sambandi við Hampiðjuna sem mun sjá um að bóka herbergi fyrir viðkomandi.“

Nánari upplýsingar um ferðina og ferðatilhögun er að finna á meðfylgjandi tengli:

Tankbod islenska 2017.pdf

Hirtshals – Dagskra 2017.pdf

https://youtu.be/C_2lMg17Qfs

 

 

 

Deila: