Mismunandi viðbrögð við frumvarpi um strandveiðar

Deila:

Eins og fram hefur komið er nú til umfjöllunar í atvinnuveganefnd Alþingis frumvarp til laga um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða.  Um er að ræða bráðabirgðaákvæði til eins árs sem fjallar um strandveiðar.   Í stað mánaðarlegan viðmiðunarafla verður miðað við heildarafla fyrir allt tímabilið.  Heimilt verður að stunda veiðar í 12 daga í hverjum mánuði þangað til að heildar potturinn klárast.

Um þetta er fjallað á heimasíðu Landssabands smábátaeigenda og segir þar svo: Fyrstu viðbrögð við frumvarpinu eru á ýmsa vegu eins og við var að búast. Aðallega hafa menn áhyggjur af því að potturinn klárist snemma og veiði verði jafnvel stöðvuð í upphafi ágústmánaðar eða fyrr.

Samkvæmt viðtali við Lilju Rafneyju formann atvinnuveganefndar Alþingis í hádegisfréttum RUV 25. mars verður potturinn 11.200 tonn sem eru 2.000 tonnum meira en hann var við upphaf strandveiða í fyrra.

Þegar tekið er mið af svari Kristjáns Þórs Júlíussonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra er engin ástæða til að óttast það að 11.200 tonn dugi ekki til að tryggja 12 veiðidaga í hverjum mánuði.

Ráðherra var spurður um hvaða áhrif það gæti haft á heildarafla strandveiðibáta að heimila þeim veiðar fjóra daga í viku frá 2. maí til og með 30. ágúst 2018 miðað við að fjöldi báta verði óbreyttur frá árinu 2017.

Svar ráðherra er skýrt:  Árið 2017 hefði þetta haft þau áhrif að afli hefði aukist um 3.941 tonn og heildarafli orðið 13.701 tonn.

Svar ráðherra

Að veiða fjóra daga í viku má jafna við 16 daga í mánuði.  Frumvarp atvinnuveganefndar gerir hins vegar ráð fyrir 12 dögum í mánuði.  Það er því hægðarleikur fyrir nefndina koma til móts við gagnrýniraddir á frumvarpið þannig það tryggi strandveiðar 12 daga í mánuði.  Samkvæmt svari ráðherra mundi heildarafli í slíku kerfi verða 10.275 tonn.

Stjórn LS mun funda um frumvarpið þann 6. apríl nk. og senda frá sér umsögn um það.

Rétt er að benda á að allir geta veitt umsögn og rennur frestur til þess út 9. apríl næstkomandi.

 

Sjá frumvarpið     /   Leiðbeiningar fyrir umsagnir

 

Deila: