Gengur vel að smíða frystitogara HB Granda

Deila:

Smíði á nýjum flakafrystitogara HB Granda er fyrir nokkru hafin hjá spænsku skipasmíðastöðinni Astilleros Armon Gijon á Norður-Spáni. Búið er að setja upp 16 blokkir eða einingar og fimm aðrar eru nú í smíðum. Skipið er samsett úr 51 einingu þannig að búið er að smíða og sníða um þriðjung skipsskrokksins, samkvæmt frétt á heimasíðu HB Granda.

Nýi frystitogarinn verður 81,30 metra langur og 17,00 metra breiður eða um 5.000 brúttótonn að stærð. Skipið er hannað af Rolls-Royce í Noregi. Hönnun þess tekur mið af orkusparnaði bæði á veiðum og á siglingu og verður skrúfan 4,00 metrar í þvermál. Aðalvélin verður af gerðinni Bergen-Diesel og verður afl hennar 5400 kW. Skipið verður búið öflugu rafvindukerfi frá Rolls-Royce og verður rafmagn fyrir vindurnar og annan búnað framleitt með ásrafali. Fullkomnasti búnaður til flökunar og frystingar verður í skipinu og er framleiðslugetan áætluð rúm 100 tonn á sólarhring. Þá verður fiskmjölsverksmiðja um borð fyrir ýmislegt sem fellur til við flakavinnsluna og verður afkastageta hennar um 50 tonn á sólarhring. Í frystilestum verður rými fyrir allt að 1.000 tonn af afurðum, flokkuðum á brettum.

Samkvæmt smíðasamningi er verð skipsins um 4,9 milljarðar króna og stefnt er að afhendingu þess um mitt næsta ár.

Deila: