Auglýst eftir umsóknum um veiðar á sæbjúgum

Deila:

Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um leyfi til veiða á sæbjúgum fiskveiðiárið 2018/2019, samanber reglugerð um veiðar á sæbjúgum, með síðari breytingum.

Sækja skal um veiðileyfi í UGGA, upplýsingagátt Fiskistofu, og skulu fylgja umsókninni upplýsingar um veiðar umsækjenda á sæbjúgum þrjú síðustu fiskveiðiár og samningur um vinnslu á sæbjúgum í landi eða jafngild yfirlýsing þegar um eigin vinnslu er að ræða.

Opið er fyrir umsóknir frá  því í dag, mánudeginum 14. ágúst til og með 20. ágúst 2018, en þá lýkur umsóknarfresti.

 

Deila: