Skaginn3X horfir til framtíðar

Deila:

Hátæknifyrirtækið Skaginn3X hefur ráðið til sín þrjá unga sjávarútvegsfræðinga frá Háskólanum á Akureyri í söluteymi fyrirtækisins. Allir hafa þeir það sameiginlegt að hafa unnið lengi í sjávarútvegi, bæði til sjós og lands.

Pétur Jakob Pétursson

Pétur Jakob Pétursson

Svæðissölustjóri fyrir Rússland og CIS. Pétur er með Bsc. gráðu í Sjávarútvegsfræði frá Háskólanum á Akureyri  auk frekara náms í sjávarútvegsfræði, meðal annars frá Háskólanum í Tromso í Noregi. Pétur starfaði áður við innkaup og gæðastjórnun hjá Deutche See, en fyrir það starfaði hann sem gæða og framleiðslustjóri hjá DFFU og við gæða og sölumál hjá Samherja á Akureyri.

Böðvar Styrmisson

Böðvar Styrmisson

Söluhönnuður. Böðvar er Grindvíkingur með Bsc. gráðu í Sjávarútvegsfræði frá Háskólanum á Akureyri, ásamt því að hafa stundað nám í tækniteiknun hjá Tækniskólanum.  Böðvar starfaði áður á Fiskmarkaði Suðurnesja, en hann hefur lengi starfað í sjávarútvegi, m.a. sem sjómaður og í fiskvinnslum í landi.

Freysteinn Nonni Mánason

Freysteinn Nonni Mánason

Svæðissölustjóri fyrir Ísland. Freysteinn er uppalinn Ísfirðingur með Bsc. gráðu í sjávarútvegsfræði frá Háskólanum á Akureyri. Freysteinn hefur lengi starfað í kringum sjávarútveg bæði á sjó og landi, meðal annars á Fiskmarkaði Suðurnesja, sem verkstjóri í fiskvinnslu og sem háseti og matsmaður á frystitogara.

Allir hafa þeir nú þegar hafið störf hjá fyrirtækinu og nóg er af verkefnum framundan, enda eru vörurnar frá Skaginn3X eftirsóttar bæði innan sem utanlands.

„Það er umtalsverð aukning í umsvifum á okkar lykil mörkuðum þannig að þeir eru frábær viðbót við teymið okkar, ekki síst til að tryggja áframhaldandi gott samstarf við núverandi og nýja viðskiptavini.“

Deila: