Veiðidögum á grásleppu fjölgað

Deila:

Gefin hefur verið út reglugerð um hrognkelsaveiðar á þessu ári. Frá þessu er greint á heimasíðu Landssambands smábátaeigenda.

Reglugerðin nú er samhljóða þeirri sem gilti í fyrra að undanskildum tveimur atriðum.

  1. Veiðitímabil allra veiðisvæða nema á innanverðum Breiðafirði hefur verið lengt og

samræmt, þ.e. frá og með 20. mars til og með 30. júní.  Tímabilið fer úr 85 dögum í 103.   Á

innanverðum Breiðafirði verður tímabilið óbreytt frá og með 20. maí til og með 12. ágúst.

  1. Veiðidagar í upphafi vertíðar eru nú 25 en voru 20 í fyrra.

„LS sendi sjávarútvegsráðuneytinu fjölmargar tillögur að breytingum á reglugerðinni 2018, en nánast öllum þeirra var hafnað.  Breytingarnar hefðu allar stuðlað að hagstæðara rekstrarumhverfi, auðveldari túlkun og minni hættu á meðafla.  LS eru það mikil vonbrigði að ekki var orðið við erindinu og hefur nú þegar óskað eftir skýringum og rökstuðningi við þeirri ákvörðun.

Einnig ber að geta þess að fellt hefur verið úr gildi ákvæði í 2. gr. um að „Leyfishöfum sem eru með eldri gerð afladagbókar beri að skipta yfir í og nota nýja“.  Þá er þrengt á ákvæði 12. gr. að í stað skötusels kemur botnfisktegundum.

Sérstök athygli er vakin á breytingu sem gerð var á reglugerð um nýtingu á afla og aukaafurðumum að heimilt verður sleppa rauðmaga við grásleppuveiðar,“ segir á heimasíðu LS.

 

Deila: