Úrvals hráefni til vinnslu

Deila:

Fiskimjölsverksmiðjur Síldarvinnslunnar í Neskaupstað og á Seyðisfirði hafa tekið á móti um 75.000 tonnum af kolmunna til vinnslu það sem af er árinu. Til Neskaupstaðar hafa borist tæplega 44.000 tonn og til Seyðisfjarðar 31.000 tonn. Kolmunnaveiðin í færeysku lögsögunni hefur gengið afar vel að undanförnu og hafa skipin fyllt sig í fáum holum.

Miklum kolmunna hefur verið landað í verksmiðjurnar að undanförnu. Börkur NK kom til Neskaupstaðar 1. maí með 2.200 tonn og sl. laugardag kom Beitir með 3.000 tonn. Bjarni Ólafsson AK landaði 1.730 tonnum á Seyðisfirði sl. laugardag og daginn eftir var landað 2.000 tonnum úr Margréti EA. Nú er verið að landa 1.600 tonnum úr Hákoni EA Seyðisfirði.

Verksmiðjustjórarnir Gunnar Sverrisson á Seyðisfirði og Hafþór Eiríksson í Neskaupstað segja í samtali við heimasíðu Síldarvinnslunnar, að kolmunninn sé úrvalshráefni til vinnslu. Skipin komi með hráefnið vel kælt að landi og þá gangi vinnslan hratt og vel fyrir sig. Hvor verksmiðja vinnur um 1.200 tonn á sólarhring og mjölið sem fæst er mjög gott. Hins vegar gefur kolmunninn lítið lýsi enda fiskurinn heldur magur á þessum árstíma.

Í morgun var Börkur NK að fylla á miðunum. Aflinn er 2.200 tonn sem fékkst í sex holum. Að sögn Leifs Þormóðssonar stýrimanns gáfu holin frá 250 tonnum og upp í 450 tonn. Sagði hann að aflinn væri dálítið misjafn en almennt góður, til dæmis hefðu góð hol fengist bæði í gærkvöldi og í morgun.
Myndin: Beitir NK á kolmunnamiðunum. Ljósm. Helgi Freyr Ólason

 

Deila: