400 bátar skráðir á strandveiðar

Deila:

Alls eru 400 bátar komnir með heimild til strandveiða, sem er 10% fjölgun frá síðasta ári.  Af þeim hafa 328 hafið veiðar og landað alls 452 tonnum.

Nokkrar sveiflur eru í veiðum milli svæða miðað við upphaf strandveiða á síðasta ári.  Þannig hafa bátar á svæði D (Hornafjörður – Borgarbyggð) bætt verulega við sig á þeim 4 dögum sem liðnir eru af strandveiðitímabilinu.  Afli þar er kominn í 150 tonn á móti 82 tonnum á sama tíma í fyrra.  Aukningin liggur í fjölda róðra, sem endurspeglar tíðarfar á þessum tíma.  Af sömu ástæðum eru aflatölur á svæði A (Eyja- og Miklaholtshreppur – Súðavíkurhreppur) nú mun lægri en í fyrra.

 

Sjá yfirlit um veiðarnar.pdf

 

 

Deila: