Góð aflabrögð á heimamiðum

Deila:

Ísfisktogarinn Viðey RE kom til hafnar í Reykjavík á mánudagsmorgun eða sólarhring á undan áætlun. Eina ástæðan er mjög góð aflabrögð á heimamiðum HB Grandatogaranna. Að sögn Jóhannesar Ellerts Eiríkssonar skipstjóra, eða Ella eins og hann er jafnan kallaður, var hann með Viðey á Fjöllunum og Eldeyjarbanka í þessari veiðiferð.

,,Vertíðartímabilinu er að ljúka og fiskurinn að ganga út af hrygningarsvæðunum. Það er búin að vera mjög góð veiði og eini vandinn er að veiða í samræmi við þarfir vinnslunnar,“ segir Ellert í spjalli á heimasíðu HB Granda.

Viðey var með 160 til 170 tonna afla í veiðiferðinni og þar af var um helmingurinn ufsi.

,,Ufsinn veiðist mikið á karfaslóð, s.s. á Fjöllunum, en við reynum að forðast gullkarfann. Það hefur tekist nokkuð vel. Það er minna um þorsk núna á þessum hefðbundnu miðum okkar en togararnir hafa verið að fá mjög góða veiði út af Jökli. Það hefur greinilega verið mjög mikið af fiski í Breiðafirði í vetur en hann er að ganga út og mun svo skila sér norður eftir í ætisleit,“ segir Elli en hann á allt eins von á því að leið ísfisktogaranna liggi norður á Vestfjarðamið fljótlega eftir sjómannadag.

Deila: