Jafn og góður afli

Deila:

Ísfisktogarinn Gullver NS kom til Seyðisfjarðar að aflokinni veiðiferð á laugardagskvöld. Landað var úr skipinu á sunnudag og síðan var haldið til veiða síðdegis þann dag. Afli skipsins var 106 tonn; 37 tonn af þorski, 34 tonn af ufsa, 24 tonn af gullkarfa og um 9 tonn af ýsu.

Þórhallur Jónsson

Heimasíða Síldarvinnslunnar  sló á þráðinn til Þórhalls Jónssonar skipstjóra og spurði hvernig veiðiferðin hafi gengið. „Það má segja að hún hafi gengið vel. Það var jafn og góður afli allan túrinn, hinn besti reytingur. Við vorum einungis að veiðum í rétt rúmlega þrjá sólarhringa þannig að aflinn fór yfir 30 tonn á sólarhring. Við vorum í ýsu og þorski á Lónsbugtinni og síðan héldum við í Berufjarðarálinn og enduðum túrinn í Hvalbakshallinu,“ segir Þórhallur.

Hluti afla Gullvers fer til vinnslu í fiskvinnslustöðinni á Seyðisfirði og segir Ómar Bogason framleiðslustjóri að þar sé unninn þorskur, ýsa og ufsi. „Vinnslan er hefðbundin hjá okkur og við framleiðum bæði ferskt og frosið fyrir Evrópumarkað. Nú eru einhver teikn á lofti um hækkandi ufsaverð á mörkuðum og það kemur sér afar vel,“ segir Ómar.
Ljósmyndir Þorgeir Baldursson.

 

Deila: