Göt á sjókví í Berufirði

Deila:

Matvælastofnun barst tilkynning frá Fiskeldi Austfjarða síðastliðinn þriðjudag um göt á nótarpoka einnar sjókvíar Fiskeldis Austfjarða við Glímeyri í Berufirði.

Götin uppgötvuðust við köfun í kví og er viðgerð lokið. Samkvæmt upplýsingum Fiskeldis Austfjarða var stærsta gatið um 2cm x 15cm og á 1m dýpi, fimm göt voru 2cm x 6cm og eitt gat 2cm x 2cm. Um 150.000 laxar voru í kvínni með meðalþyngd 530g. Við köfunareftirlit sem átti sér stað fyrir rúmum þremur vikum, eða 22. ágúst sl., var nótarpoki heill.

Atvikið er til meðferðar hjá Matvælastofnun. Eftirlitsmenn stofnunarinnar munu skoða aðstæður hjá fyrirtækinu og fara yfir viðbrögð þess. Fiskeldi Austfjarða lagði út net í samráði við Fiskistofu til að kanna hvort strok hafi átt sér stað. Netanna hefur verið vitjað. Enginn lax hefur veiðst og hefur veiðiaðgerðum verið hætt.

Deila: