Vésteinn GK – 30 tonna línubátur frá Trefjum

Deila:

Útgerðarfélagið Einhamar ehf í Grindavík fékk í síðustu viku afhentan nýjan yfirbyggðan Cleopatra 50 beitningavélarbát. Framkvæmdastjóri Einhamars er Stefán Kristjánsson.

Nýi báturinn heitir Vésteinn GK 88. Báturinn er 15 metrar á lengd og mælist 30 brúttótonn. Vésteinn er systurskip Gísla Súrssonar GK 8 og Auðar Vésteins SU 88 sem útgerðin fékk afgreidda árið 2014.
Bátarnir eru gerðir út á krókaaflamarki. Theodór Ríkharðsson verður skipstjóri á Vésteini. Óskar Sveinsson er útgerðastjóri Einhamars.

Aðalvél bátsins er af gerðinni Doosan 4V222TI 880 hestöfl (22L) tengd frístandandi ZF 665 V-gír.
Rafstöð er af gerðinni Broadcrown.
Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni JRC og Raymarine.
Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins.
Báturinn er útbúinn til línuveiða. Beitningavél, rekkakerfi og línuspil er frá Mustad í Noregi.
Búnaður á dekki er frá Stálorku.
Ísvél og forkælir er frá Kælingu ehf.
Löndunarkrani á er af gerðinni TMP frá Ásafli ehf.
Lífbátar og annar öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.

Rými er fyrir allt að 41 460 lítra kör í lest. Millidekk er lokað með aðgreindu dráttarrými. Í bátnum er upphituð stakkageymsla. Stór borðsalur er í brúnni. Svefnpláss er fyrir fimm í lúkar auk fullkominnar eldunaraðstöðu með eldavél, bakarofni, örbylgjuofn, ísskáp og uppþvottavél.
Báturinn er útbúinn til lengri útiveru ef þarf og aðbúnaður um borð fyrir áhöfn í takt við það.

 

Deila: